Það þarf ekki að minnast á það að Iceland Airwaves er í fullum gangi en flestir sem lesa þetta vita það nú þegar. Allir dagar eru vel pakkaðir af góðri stemmingu og tónleikar í nánast hverju húsi í miðbæ Reykjavíkur. Albumm.is er með nokkra ljósmyndara á hátíðinni í ár og munum við birta ljósmyndir alla dagana sem hátíðin er.
Á skemmtistaðnum Húrra í kvöld verður sérstakt Albumm kvöld en þar koma fram frábærar hljómsveitir og byrja herlegheitin stundvíslega kl 20:00
Dagskráin er eftirfarandi:
03:30 Kane West (UK)
02:30 B-Ruff
01:30 Kött grá pje
00:30 Kero Kero Bonito (UK)
23:30 Ruxpin
22:30 Tonik Ensemble
21:40 Dream Wife (UK/IS)
20:50 Wesen
20:00 TRPTYCH
Hér má sjá ljósmyndir af hljómsveitunum Misþyrming, Muck, Sinmara og Kælan Mikla.
Ljósmyndir: Hafsteinn Viðar Ársælsson fyrir Albumm.is
Umræðan