Tónlistarhátíðin Eistnaflug fór fram á Neskaupsstað helgina 6. – 9. júlí og óhætt er að segja að stemmingin hafi verið hreint út sagt stórkostleg. Hátíðin einblínir á metal tónlist í víðum skilningi og var dagskráin í ár frábær! Urðun, Agent Fresco, Marduk, Zhrine og goðsagnakennda hljómsveitin Kolrassa Krókríðandi er lítið brot af því sem kom fram en það er á tæru að eitthvað var fyrir alla.
Eistnaflug er virkilega góð og vinaleg hátíð enda er yfirskriftin „Bannað Að Vera Fáviti,“ sem er greinilega að virka!
Ljósmyndarinn Heiner Bach var á svæðinu og tók hann þessar frábæru ljósmyndir.
Umræðan