ATP (All Tomorrow´s Parties) fór fram um helgina sem leið eins og allir eflaust vita. Margt var um manninn en um fjögur þúsund manns sótti hátíðina í ár.
Það mátti meðal annars sjá Iggy Pop sem minnti svolítið á Leatherface úr kvikmyndinni Texas Chainsaw Massacre, en djöfull er kallinn alltaf cool!
Einnig mátti sjá gamlar kempur eins og Public Enemy, Belle & Sebastian og margt margt fleira!
Frímann Kjerúlf Björnsson keyrði upp á Ásbrú á hvorki né minna en á húsbíl! Enda eina vitið þegar um þriggja daga tónlistarveislu er að ræða.
Frímann hlóð myndavélina í gríð og erg og tók hann þessar frábæru ljósmyndir fyrir hönd Albumm.is
Umræðan