Ískenska hjólabrettafyrirtækið Mold Skateboards er á blússandi siglingu um þessar mundir og er margt á döfinni hjá fyrirtækinu. Tveir skeitarar voru að bætast í hópinn og eru þeir því orðnir fjórir talsins Sigurður Rósant, Marino Kristjánsson, Hlynur Gunnarsson og Arnar Steinn.
Mold Skateboards leggja mikla áherslu á fyrsta flokks gæði en allur viðurinn er pantaður inn frá Kanada og er hann hágæða Canadian Sugar Maple. Allar plöturnar eru handsmíðaðar hér á landi og aðeins ein plata pressuð í einu svo að lögunin á brettinu haldi sér 100%. Átján tonna pressa er notuð við herlegheitin sem eru nú orðnar tvær talsins og er því von á aukinni framleiðslu. Von er á glænýjum brettaplötum í verslanir í lok Maí og mun Ómar Hauksson grafískur hönnuður sjá um að skreita brettin listsamlega eins og með fyrri brettin frá Mold.
Í vikunni fóru Mold bolir í sölu nánar tiltekið í Mohawks í kringlunni en um ræðir svokallaða „Team Rider boli!“ Bolirnir koma í afar takmörkuðu upplagi þannig fyrstur kemur fyrstur fær.
Á dögunum fóru tveir úr Mold krúinu í ljósmyndaleiðangur, bretti voru prófuð og hamingjan í fyrirrúmi. Hlynur og Siggi Rósant fóru á kostum þennan dag eins og þeim einum er lagið.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vel valdnar ljósmyndir.
Ljósmyndir: Hörður Ásbjörnsson fyrir Mold Skateboards.
Umræðan