Listamaðurinn Odee (Oddur Eysteinn Friðriksson) opnaði sýninguna Landvættir í Gallerí Fold síðastliðinn laugardag. Odee býr á Austfjörðum og fær hann innblástur fyrir verk sýn úr náttúrunni þar í kring og reyndar útum allt land. Odee hefur verið að grúska í Norrænni goðafræði og þar datt hann inn á Landvætti, og persónur í verkum hanns urðu að nýjum Landvættum. Ísland hefur fjóra mjög þekkta Landvætti sem er partur af skjaldamerki Íslands. Sýningin var vel sótt enda verk kappans virkilega glæsileg!
Hafsteinn Viðar Ársælsson mætti á sýninguna og tók hann þessar frábæru ljósmyndir fyrir Albumm.is
Umræðan