Tónlistarmaðurinn Árni Ehmann var að senda ásamt systur sinni Daníelu Ehmann lagið Staring At The Moon en fyrir ekki svo löngu sendi kappinn frá sér lagið Dreaming Of This World. Nýja lagið er ansi skemmtilegt og má lýsa því sem léttu nýbylgjurokki! Raddirnar smell passa saman og ætti þetta meistarastykki svo sannarlega að lýsa upp skammdegið.
Ég fékk með mér minn uppáhalds trommara hann Bassa Ólafsson og hina fjölhæfu listamenn Daníel Karl Cassidy á bassa og Stefán Örn Gunnlaugsson Íkorna á hljómborð. Auk þess sem að hann tók upp og mixaði lagið með mér – Árni Ehmann.
Umræðan