Lay Low heldur langþráða tónleika í Bæjarbíói laugardaginn 1. desember. Tilefnið að þessu sinni er vinýl útgáfa meistaraverksins “Brostinn Strengur” sem kom upphaflega út árið 2011 og vakti mikla lukku meðal hlustenda hennar. Auk þess sem platan verður flutt í heild sinni mun Lay Low flytja mörg af sínum þekktustu lögum ásamt fullskipaðri hljómsveit.
Lay Low hefur átt farsælan feril frá því hún kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2006 með frumraun sinni “Please Don’t Hate Me”. Platan sló rækilega í gegn, náði strax platinum sölu og sópaði til sín verðlaunum. Í kjölfarið gaf hún út plöturnar “Farewell Good Night’s Sleep” (2008), “Brostinn Strengur” (2011) og “Talking About the Weather” (2013) sem allar hafa fengið frábærar viðtökur bæði hér heima og erlendis.
Ábreiða Lay Low af laginu Jolene naut mikilla vinsælda við útgáfu á öldum ljósvakans og dúett hennar með Ragga Bjarna í laginu “Þannig týnist tíminn” er ennþá í miklu uppáhaldi landsmanna.
Hægt er að nálgast miða á tónleikana í Bæjarbíó laugardagskvöldið 1. Desember hér.
Hægt er að nálgast miða á tónleikana á Græna Hattinum föstudagskvöldið 7. Desember hér.
Umræðan