Á næstu tónleikum vordagskrár Múlans, miðvikudaginn 22. mars á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu, kemur fram kvartett saxófónleikarans Ólafs Jónssonar. Ólafur hefur komið víða við og tekið þátt í fjölmörgum tónleikum og uppákomum síðustu tvo áratugina eða svo ásamt því að vera meðlimur í Stórsveit Reykjavíkur. Hér leiðir hann kvartett sinn með dagskrá af frumsaminni tónlist ásamt vel völdum lögum nokkurra jazz meistara samtímans. Meðleikarar Ólafs eru ekki að verri endanum, Eyþór Gunnarsson leikur á píanó, Þorgrímur Jónsson á bassa og trommuleikarinn Scott Mclemore. Þess má geta að kvartettinn heldur í hljóðver í lok apríl til að taka upp fyrstu sóló-plötu Ólafs.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og fara fram á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu og er miðaverð kr. 2000, 1000 kr. fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu, harpa.is og tix.is
Spennandi vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum á Björtuloftum, Hörpu með 16 tónleikum til 17. maí. Flestir af helstu jazzleikurum þjóðarinnar koma fram í dagskránni, m.a. Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson, Eyþór Gunnarsson, Tómas R. Einarsson, Sigurður Flosason, Einar Scheving, Þorgrímur Jónsson, Sunna Gunnlaugs, Erik Qvick, Ásgeir Ásgeirsson, Andrés Þór Gunnlaugsson, Scott McLemore, Ólafur Jónsson, Kjartan Valdemarsson, Haukur Gröndal og Jóel Pálsson og fleiri og fleiri.
Múlinn er að hefja sitt 21. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóðnum og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Umræðan