KUL er glæný rokkhljómsveit sem sendir frá sér sitt fyrsta lag í dag en það ber heitið „Drop Your Head.” Meðlimir hljómsveitarinnar hafa allir verið virkir í íslensku tónlistarlífi um árabil! Kul eru þeir Heiðar Örn Kristjánsson (Botnleðja, The Viking Giant Show, Pollapönk), Helgi Rúnar Gunnarsson (Benny Crespo’s Gang, Elín Helena, Horrible Youth), Hálfdán Árnason (Himbrimi, Sign, Legend) og Skúli Gíslason (The Roulette, Different Turns).
Hljómsveitin vinnur þessa dagana að plötu með upptökustjóranum Arnari Guðjónssyni (Leaves, Warmland). Sveitin kemur fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í Nóvember næstkomandi. „Drop Your Head” er aðgengilegt á Spotify og öllum helstu streymisveitum.
Umræðan