Gyða Valtýsdóttir hefur nú tilkynnt um nýtt verkefni og plötu: GYDA – Evolution. Platan er fyrsta plata Gyðu sem inniheldur hennar eigin lagasmíðar, en síðasta plata hennar – Epicycle – innihélt eldri tónsmíðar tónskálda á borð við Messiaen og Schubert í nýjum búning. Gyða hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins fyrir Epicycle.
Nú hefur vefsíðan self-titled magazine frumflutt nýtt lag af plötunni – “Í Annarri Vídd”. Lagið er eina lag plötunnar sem er á íslensku og er jafnframt lagið sem mótaði plötuna. Lesið meira um einkar áhugaverða sögu lagsins og hlustið hér.
Evolution kemur út í október á vegum figureight og kveður þar við nýjan tón. Á plötunni blandast saman hið klassíska, hið tilraunakenda og hið poppaða svo úr verður kokteill sem aðeins Gyða gæti blandað. Platan var tekin upp á 10 dögum í Los Angeles og New York og auk Gyðu var það Alex Somers sem pródúseraði. Aðrir sem komu að gerð plötunnar voru Úlfur Hansson, Albert Finnbogason, Shahzad Ismaily, Aaron Roche og Julian Sartorius.
Fyrir stuttu kom út fyrsta tóndæmi af plötunni, lagið „Moonchild” og myndband:
Nú er hægt er að forpanta plötuna á vínyl og sem niðurhal, en þá fylgja lögin “Moonchild” og “Í Annarri Vídd” með samstundis og platan verður send til kaupanda á útgáfudegi. Sjá hér.
[bandcamp width=350 height=470 album=2726686128 size=large bgcol=ffffff linkcol=0687f5 tracklist=false]
Umræðan