2017 er komið vel af stað og Íslendingar langflestir komnir á fullt í hversdagsleikann og allt sem honum fylgir. Hversdagsleikann breytist lítið milli ára og hann þarf að brjóta upp með reglulegu millibili svo hann súrni ekki. Ein leið til þess að lífga uppá hversdagsleikann er að skella sér í góðum félagsskap í karókí og því ætla nokkrir fullveðja tónlistarmenn að bjóða uppá slíka skemmtun á KEX Hostel föstudaginn 13. janúar.
KEX Karaoke hefst kl. 20:00 á föstudaginn og eru það engir aðrir en tónlistarmennirnir Guðmundur Óskar Guðmundsson og Hjörtur Ingvi Jóhannsson úr Hjaltalín, Aron Steinn Ásbjarnarson tónskáld, Þorvaldur Þór Þorvaldsson sem hefur slegið takt fyrir Bloodgroup, Jónsa, Samúel Jón Samúelsson o.fl. og Örn Eldjárn gítarleikara Tilbury og Ylju.
Gestir á KEX Karaoke geta valið úr um 100 laga banka hjá Karaoke-stjóranum sem verður á svæðinu og er aldrei að vita nema að einhverjir þekktir gestasöngvarar taki lagið.
Þetta er í annað skiptið sem haldið hefur lifandi Karaoke hefur verið haldið á KEX því 10 ára afmæli The Reykjavík Grapevine var fagnað þannig og meðal þeirra sem tóku þátt voru Sigríður Thorlacius, Daníel Ágúst Haraldsson, Hugleikur Dagsson o.fl..
Umræðan