Frá opnun KEX Hostels árið 2011 hefur gistiheimilið og veitingastaðurinn Sæmundur í sparifötunum verið þeirra gæfu aðnjótandi að vera í hringiðu hinnar miklu grósku sem einkennir íslenskt tónlistarlíf. Starfsfólk KEX Hostels og Kexlands er afar þakklátt fyrir að fá að fylgjast með á hliðarlínunni og sjá íslenska tónlist dafna hérlendis sem og á erlendri grundu.
Til þess að ítreka þakklæti sitt til íslensks tónlistarfólks hefur KEX Hostel stofnað KEX Ferðasjóð sem mun hafa að leiðarljósi að styrkja ungt tónlistarfólk til útrásar og styðja við bakið á þeim í tónleikaferðum.
Í úthlutunarnefnd eru þau Arnar Eggert Thoroddssen, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Ragnheiður Eiríksdóttir, Lárus Bl. Sigurðsson og Benedikt Reynisson.
Umsækjendur geta eingöngu verið tónlistarfólk eða hljómsveitir. Umsóknum skal skilað rafrænt (á PDF- eða Word-formi) til sjóðsins. Með umsóknum skulu fylgja ferilskrár helstu þátttakenda verkefnisins og vísun í tónlistariðkun þeirra (t.a.m. rafræn tóndæmi (mp3), vefsíður (Soundcloud, Bandcamp eða álíka) og/eða myndbönd (Youtube, Vimeo eða álíka).
Í fjárhagsáætlun umsóknar skal þess getið ef sótt hefur verið í aðra sjóði eða hvort það standi til og tilgreina þá sérstaklega. Sjóðurinn lítur það jákvæðum augum að verkefni hljóti einnig styrkveitingu annarstaðar frá.
Umsóknarfrestur ár hvert er 28. febrúar og er úthlutað á afmælisdegi KEX í apríl. Gerð verður undantekning í ár og verður úthlutað í maí, skilafrestur fyrir umsóknir er nú 15. maí og tilkynnt verður um úthlutun. Samtals er úthlutað einni milljón króna.
KEX Tónlistarferðasjóður lítur til eftirtalinna atriða við afgreiðslu umsókna:
Að umsókn verkefnisins sýni fram á að hér sé á ferð bæði metnaðarfullt og framkvæmanlegt verkefni.
Styrkur sjóðsins miðar að því að styðja ungt tónlistarfólk við að koma fram erlendis. Gert er sem skilyrði að styrkhafar spili á tónleikum á KEX Hostel áður en haldið er erlendis.
KEX Tónlistarferðasjóður hefur ekki milligöngu um samskipti eða bókanir fyrir tónlistarfólk erlendis.
Formleg kynning á sjóðnum og úthlutunarnefndinni verður í Gym & Tonic salnum á KEX Hostel í kvöld fimmtudag kl. 18:00. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Umsóknir skulu sendar með tölvupósti á netfangið kexferdasjodur@kexland.is.
Umræðan