Steinar Fjeldsted og Sigrún Guðjohnsen settu vefsíðuna albumm.is í loftið 2014 með það að markmiði að sinna íslenskri tónlist og grasrótarmenningu. Viðtökur hafa verið frábærar og nú síðustu misseri er vefurinn komin á mikið flug í kjölfar samstarfs við vísi.is og lesa nú vefinn tugþúsundir manns í hverjum mánuði.
Framleiðandinn Kári Sturluson hefur gengið til liðs við albumm.is teymið og saman hyggja þau á frekari landvinninga á netinu sem og strætum Reykjavíkurborgar.
Á næstu vikum mun enska útgáfan af albumm.is lýta dagsins ljós og allskonar hliðarsjálf vefsins fara að poppa upp hér og þar um borgina.
Kári Sturluson
Kári Sturluson hefur um árabil starfað við framleiðslu tónlistar, kvikmynda og viðburða á Íslandi sem og erlendis. Meðal samstarfsfólks Kára í gegnum tíðina má nefna Quarashi, Emilíönu Torrini, Sigur Rós, Hjálmar, Megas og Damien Rice. Auk þess hefur Kári haldið aragrúa tónleika á Íslandi með erlendu listafólki einsog Foo Fighters, Coldplay, Buena Vista Social Club, Robert Plant, Rammstein og Duran Duran svo fátt eitt sé nefnt. Kári hefur unnið ýmis verkefni tengd tónlist og viðburðum fyrir ríki og borg ásamt því að hafa stjórnað Iceland Airwaves hátíðinni fyrstu ár hennar.
Sigrún Guðjohnsen
Sigrún er útskrifuð leikkona úr Vancouver Film School. Hún bjó í Kanada í sjö ár þarsem hún gat sér gott orð sem leikkona og framleiðandi kvikmynda og sjónvarpsefnis. Sigrún er ekki ókunnug íslenskri tónlist og netinu enda hélt hún úti vinsællri vefsíðu fyrir Norður Ameríku um íslenska tónlist og menningu.
Steinar Fjeldsted
Steinar hefur verið viðloðandi íslensku tónlistar- og hjólabrettasenuna frá táningsaldri. Steinar stofnaði hljómsveitina Quarashi haustið 1996 sem átti gríðarlegri velgengi að fagna á Íslandi og síðar um heim allan. Síðustu ár hefur Steinar einbeitt sér að albumm.is og sinnt hjólabrettamenningunni. Margt ungviðið hefur td. sótt hjólabrettanámskeið hans í aðstöðu Brettafélags Hafnarfjarðar.
Umræðan