Hjólabrettakeppnin Júlí Slamm verður haldin í þriðja sinn þann 25. Júlí næstkomandi en þetta er án efa stærsta hjólabrettakeppni ársins! Íþróttafélagið Jaðar og Mohawks standa að keppninni og er hún Fueled By Mountain Dew. Keppt verður í þremur flokkum fjórtán ára og yngri, fjórtán til sautján ára og átján ára og eldri en í þeim flokki er það sem kallast “Invite only“ eða boðsgestir eingöngu. (Ef þú telur þig eiga erindi í keppnina en ert ekki boðinn hafðu þá samband við Mohawks á Facebook)
Keppnin fer fram í hjólabrettagarðinum í Laugardalnum og óhætt er að segja að í ár verður keppnin hin glæsilegasta! Ýmislegt verður í boði og þar á meðal verður plötusnúður á staðnum til að halda stemmingunni uppi en mikil leynd hvílir yfir hver það er.
Verðlaunin í ár eru svo sannarlega ekki af verri endanum, en eins glæsileg verðlaun hafa ekki sést á klakanum áður! Tveir miðar í Dew Tour Am Series í Amsterdam og að sjálfsögðu er flug og gisting innifalin! Það er til mikils að vinna!
„Ég, Mountain Dew á Íslandi og Ölgerðin höfum unnið að þessu í þrjú ár og loksins er þetta orðið að veruleika! Við höfum alltaf viljað koma þessu íþróttafólki út að keppa í BMX, hjólabrettum og fleira og nú er það orðið að veruleika. Þetta getur opnað stórar dyr fyrir þá sem hreppa miðana. Þessi litli neisti gæti orðið að mjög stóru báli!“ – Alexander “Lexi“ Kárason. Formaður Íþróttafélagsins Jaðar.
Sá sem hreppir fyrsta sætið í flokki átján ára og eldri fær einn miða á keppnina í Amsterdam en einnig velur dómnefndin svokallað Wildcard eða þann sem þeim finnst hafa skarað fram úr og fær hann því miða númer tvö.
Drífið ykkur út í næstu 10-11 verslun, kaupið ykkur Mountain Dew og þú gætir verið á leiðinni á Dew Tour Am Series keppnina sem áhorfandi, en tveir slíkir miðar eru í boði!
Dew Tour Am Series í Amsterdam fer fram dagana 29 – 30 ágúst næstkomandi. Það verður mjög gaman að fylgjast með okkar mönnum á erlendri grundu. Koma svo Ísland!
Júlí Slamm er frá kl: 13.00 – 18.00 þann 25.07.2015 í Laugardalnum.
Albumm.is kvetur alla til að mæta!
Frekari upplýsingar hér: https://www.facebook.com/groups/136931753055980/permalink/844943318921483
Skráning er hafin hér: https://www.facebook.com/MountainDewIceland?v=app_491964740961609&app_data=referer_override%3Dhttps%253A%252F%252Fwww.facebook.com%252F
Umræðan