Hljómsveitin Klassart var að gefa út nýtt lag sem ber heitið „Júlí.” Lagið átti upprunalega að koma út á þriðju plötu Klassart Smástirni sem kom út árið 2014 en var ekki klárt í tæka tíð fyrir útgáfu. Fjórum árum seinna var lagið tekið upp hjá Kidda í Stúdeó Sýrlandi og leit svo dagsins ljós á síðasta degi júlímánaðar 2018.
Kristinn Sturluson og Smári Guðmundsson sáu um upptökustjórn og hljóðblöndun. Trommur var í höndum Kristins Sturlusonar. Önnur hljóðfæri: Smári Guðmundsson. Söngur: Fríða Dís Guðmundsdóttir. Upptökur fóru fram í Stúdeó Sýrlandi.
„Júlí” er tileinkað Særúnu Leu, fallegu systur okkar segja sveitarmeðlimir í lokinn!
Klassart kemur fram á:
Menningarveisla Sólheima. 18. ágúst. kl.14:00.
Sandgerðisdagar. Sagnakvöld. 23. ágúst. kl.20:00.
Umræðan