Útlaginn er nýjasta bók Jóns Gnarr en hún kom út á dögunum og var því fagnað á Kex Hostel síðastliðið fimmtudagskvöld. Margt var um manninn og tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon tók nokkur lög við góðar undirtektir.
Útlaginn er þriðja skáldævisaga Jóns Gnarr. Áður hafa komið út Indjáninn og Sjóræninginn. Í Útlaganum rekur Jón sögu sína á aldrinum fjórtán til nítján ára af djúpri einlægni og alkunnum húmor.
Hafsteinn Viðar Ársælsson mætti í teitið og tók hann þessar frábæru ljósmyndir fyrir Albumm.is
Umræðan