Tónlistarkonan Ingunn Huld sendi frá sér breiðskífuna Fjúk fyrir skömmu en hún hefur fengið frábærar viðtökur. Ingunn hefur sent frá sér lögin „Umvafin“ og „Upp“ en það er nú á vinsældarlista rásar 2. Öll lögin á plötunni eru á íslensku og fjalla þau um hinar og þessar vangaveltur tengdar lífinu, síbreytilegri tilverunni, tilfinningum og hádramatískri veðráttunni. Textarnir á plötunni hafa orðið til á um tíu ára tímabili en lögin eru samin seinustu fjögur til fimm árin, flest þeirra í tengslum við burtfarartónleika Ingunnar frá Tónlistarskóla FÍH vorið 2013, þar sem hún lagði stund á jazzsöng.
Á plötunni spila all-star bandið Ásgeir Ásgeirsson, Birgir Bragason, Erik Qvick, Ólafur Schram, Hallgrímur Jónas Jensson, Unnur Birna Bassadóttir og Stefán Örn Gunnlaugsson en hann sér einnig um hljóðblöndun á plötunni. Upptökur fóru fram í Geimsteini hjá Birki Rafni Gíslasyni og hjá Stefáni Erni Gunnlaugssyni í Aldingarðinum.
Einnig var Ingunn Huld að opna nýja glæsilega heimasíðu, endilega kíkið á hana hér.
Umræðan