Snjóbrettakapparnir Ásgeir Örn Jóhannsson og Ástvaldur Ari Guðmundsson voru að keppa á International Childrens Games í Innsbruck í Austurríki á vegum Jaðar Íþróttafélag.
Kapparnir kepptu í Bordercross og í Slopestyle en Ásgeir nældi sér í þriðja sætið í Slopestyle og Ástvaldur í það fjórða.
Alls voru keppendurnir sextán talsins, virkilega glæsilegur árangur hjá okkar mönnum og ekki amarlegt að fá bronsið heim á klakann!
Jóhann Óskar Borgþórsson Þjálfari drengjanna var í skíjunum yfir árangnum og mikil gleði ríkir innan hópsins.
Albumm.is óskar okkar mönnum til hamingju.
Umræðan