Hljómsveitin Dimma var að senda frá sér glænýtt myndband við lagið „Villimey“ en það er tekið af væntanlegri plötu sveitarinnar Eldraunir.
„Eldraunir“ er í raun síðasti hluti af þríleik sem tengist lauslega og hófst með útgáfu plötunnar „Myrkraverk“ árið 2012 en þar var yrkisefnið öll þau mannanna verk sem framin eru í myrkrinu og skuggahliðum mannlífsins. Á „Vélráð,” sem kom út 2014, ræddi um þá klæki sem mannfólkið notar til þess að beygja náungann undir sinn vilja og ná yfirhöndinni og völdum í samskiptum sín á milli. „Eldraunir” er svo um erfiðleikana sem við mætum hvert og eitt í lífinu á meðan við berjumst áfram til að vinna okkur brautargengi í köldum og hörðum heimi.
Tónlistarlega þá kveður við nýjan tón á plötunni en hún er þyngri, harðari og hraðari en fyrri plötur Dimmu. Hljóðheimurinn er einfaldari og meira lifandi en áður enda var sveitin búin að eyða miklum tíma í demóupptökur áður en komið var í hljóðverið og menn vissu upp á hár hvað gera átti þegar þangað kom.
Á Eldraunum má því heyra mjög vel æfða rokkhljómsveit sem tekur upp við bestu aðstæður með helstu fagmenn landsins sér til aðstoðar, en platan er tekin upp í Sundlauginni í Álafosskvosinni undir stjórn Haraldar V. Sveinbjörnssonar upptökumeistara en Ívar Ragnarsson hljóðblandar og Hafþór „Tempó” Karlsson tónjafnar.
Sveitin blæs til útgáfutónleika á Kaffi Rauðka 25. Maí, Græna Hattinum 26 og 27. Maí, og í Háskólabíói 10. Júní. Hægt er að nálgast miða á Miði.is
Umræðan