Sextán árum eftir að Suede komu fyrst til islands og léku á eftirminnilegum tónleikum í Laugardalshöll hefur hljómsveitin boðað komu sína aftur til eyjunnar köldu.
Suede munu koma fram á ný í Laugardalshöll þann 22. október. Á tónleikunum munu þeir flytja efni af nýjustu plötu sinni, Night thoughts, og sýna um leið samnefnda kvikmynd sem hljómsveitin vann í samstarfi við Roger Sargent. Seinni hluta tónleikana munu Suede spila valið efni og alla helstu smellina af sínum ferli. Suede hefur þegar tekið þessa samsetningu a nokkrum tónleikum undanfarið ár og hlotið einróma lof fyrir.
Suede voru “headliner” á John Peel sviðinu á Glastonbury 2015 við fádæma undirtektir og það sama ár hlutu þeir “Godlike Genious” verðlaun NME og þar með almenna viðurkenningu á sinni snilligáfu.
Night thoughts hefur einsog vel flestar aðrar plötur Suede fengið afburðar dóma. All Music gaf plötunni 4.5 stjörnur og the Guardian 4 stjörnur svo dæmi séu tekin.
Söngkonan efnilega Soffía Björg sér um að hita upp tónleikagesti.
Miðasala hefst þriðjudaginn 20. september á midi.is https://midi.is/tonleikar/1/9767/Suede
Umræðan