Hljómsveitin ONI frá Neskaupstað var stofnuð árið 2010. Sumir segja að ONI sé stoner/sludge Metal band en meðlimir sveitarinnar líta á sig meira sem Rokk band. Meðlimir ONI eru: Róbert Þór Guðmundsson – Söngur, Daníel Magnús B. Ásgeirsson – Gítar, Þorsteinn Árnason – Bassi og Brynjar Örn Rúnarsson – Trommur.
Í Júlí 2014 gaf ONI út sína fyrstu plötu sem ber nafnið „Misadventures“ á henni eru átta lög. Eitt lagið á plötunni (A Place for Lovers) er trommað af fyrrum trommara hljómsveitarinnar Bjarti Sæmundssyni.
Eftir að hljómsveitin var stofnuð fóru strákarnir að semja á fullu og útkoman var progressive rokk sem þróaðist svo út í groovy stoner rokk með post metal og sludge metal ívafi.
Hljómsveitin sækir sér innblástur frá mörgum artistum og þar má meðal nefna: Brain Police, Boris, Mastodon, Down, Clutch, ISIS og artistum frá öðrum tónlistarstefnum líka t.d. jazz, blús o.fl.
Lögin eru samin af öllum meðlimum sveitarinnar, tekin upp og mixuð af Guðjóni Birgi Jóhannssyni, masteruð af Flex Árnasyni. Nafnið ONI kemur frá Daníel gítarleikara hljómsveitarinnar en nafnið hefur enga sérstaka þýðingu.
ONI spilaði sitt fyrsta (off-venue) gigg á Eistnaflugi 2011, en það var bara rétt byrjunin. 2012 spilaði ONI á aðalsviðinu á Eistnaflugi ásamt Dimmu og Sólstöfum svo eftir það á Andkristnihátíðinni.
Í Janúar 2013 voru mannabreytingar í hljómsveitinni og þeir ákváðu að fá gamla trommara ONI Brynjar Örn Rúnarsson aftur til liðs við sig. Seinna um haustið sama ár spilaði hljómsveitin á Fuzz Fezt, a stoner rock oriented mini-festival ásamt Brain Police og PLÖW.
ONI hefur farið hröðum framförum á stuttum tíma og segja má að 2014 hafi verið hátindurinn hjá hljómsveitinni en þeir komu fram ásamt Brain Police á Græna Hattinum á Akureyri sem var pakkað og seldist upp á stuttum tíma, The Vintage Caraven á Gamla Gauknum í Reykjavík þar sem þeir voru velkomnir með opnum örmum og síðast en ekki síst Eistnaflug 2014.
Umræðan