Hljómsveitin Noise gefur út í dag lagið „Quiet“ sem er fyrsti singúll af væntanlegri plötu hljómsveitarinnar sem ber heitið Echoes. Platan er væntanleg í verslanir í Mars.
Noise hafa undanfarin ár verið í hljóðveri að vinna að nýju plötunni ásamt því að fara í tónleikaferðir til Bretlands og Evrópu við góðar undirtektir. Myndbandið við lagið var unnið af góðu teymi frá Tjarnargötunni, en Baldvin Albertsson leikstýrði og þeir Viktor A. Bogdansky og Skapti Magnús sáu um stjórn kvikmyndatöku.
Lag og texti er saminn af Einari Vilberg, söngvara og gítarleikara Noise. Platan var tekin upp af Einari Vilberg og Stefáni Vilberg í Hljóðverk sem er stúdíó þeirra bræðra. Einar sá jafnframt um pródúseringu, hljóðblöndun og masteringu lagsins.
Forpöntun á Echoes plötunni er hafin á heimasíðu Noise, en þeir sem panta eintak geta halað niður „Quiet” laginu samstundis.
Umræðan