Hljómsveitin Ensími gaf út nýverið fimmtu breiðskífu sína og ber hún heitið Herðubreið. Hljómsveitin hefur aðallega komið fram á hátíðum á borð við Secret Solstice og Bræðslunni í sumar en nú er komið að því að sveitin haldi tónleika. Fyrri tónleikarnir verða í kvöld föstudag á Húrra en svo fer hljómsveitin norður og leikur á Græna Hattinum á laugardagskvöldið. Ensími ætlar að leika ný lög af plötunni Herðubreið í bland við eldri slagara og lög sem sjaldan fá að heyrast á tónleikum. Hægt verður að versla Herðubreið á tónleikunum og fá hana áritaða af meðlimum Ensími.
Breiðskífan Herðubreið er sú fimmta sem rennur undan rifjum hljómsveitarinnar. Hún var unnin í nokkrum lotum af liðsmönnum sveitarinnar undir dyggri stjórn Hrafn Thoroddsen, forsprakka Ensími. Herðubreið var hljóðblönduð af Arnari Guðjónssyni hjá Aeronaut Studios og tónjöfnuð af Mandy Parnell hjá Black Saloon í Bretlandi. Hönnun umslags er í höndum Linda Loeskow.
Hljómsveitin Ensími var stofnuð árið 1996 til að svala þorsta liðsmanna í tónlistarsköpun. Í upphafi var ekki stefnan að gera eiginlega hljómsveit en eftir eðlilegan meðgöngutíma hljóðrituðu liðsmenn prufuupptökur af nokkrum lögum sem rötuðu í hendurnar á útgefendum sem vildu ólmir gefa efniviðinn út. Frumburður sveitarinnar „Kafbátamúsík” leit dagsins ljós árið 1998 og hlaut einróma lof gagnrýnenda og tónlistarunnenda þrátt fyrir að sveitin hafði aldrei komið fram opinberlega og því ekkert þekkt. Hljómsveitin var valin bjartasta vonin og lagið ,,Atari” var valið besta lagið á Íslensku tónlistaverðlaununum það árið. Haustið 1999 hófust upptökur á annari plötu Ensími. Var hún að stórum hluta unnin af upptökustjóranum Steve Albini, sem þekktastur er fyrir starf sitt með sveitum eins og Nirvana og Pixies. Fyrir vikið hafði ,,BMX” yfir sér hrárri hljóm að hluta heldur en frumburðurinn. Þriðja plata sveitarinnar var unnin af liðsmönnum Ensími og kom út árið 2002 og var samnefnd sveitinni. Fjórða platan „Gæludýr” kom svo út árið 2010.
Ensími er rómuð fyrir öflugan lifandi flutning enda liðsmenn fagmenn sem koma reglulega fram með helstu tónlistarmönnum samtímans. Ensími er sparsöm á tónleikahald og því sjaldgefið tækifæri að bera hana augum og eyrum þegar hún fer á stjá.
Hljómsveitarmeðlimir:
Hrafn Thoroddsen – Söngur / Gítar
Franz Gunnarsson – Gítar / Bakrödd
Guðni Finnsson – Bassi / Bakrödd
Arnar Gíslason – Trommur
Þorbjörn Sigurðsson – Hljómborð / Bakrödd
Hlekkir:
Viðburður: Reykjavík
Viðburður: Akureyri
Ensími: Twitter
Ensími: Reverbnation
Myndbönd: Youtube
Tengdar Fréttir:
https://albumm.is/ljosmyndir-fra-utgafutonleikum-ensima/
https://albumm.is/utvarpsthatturinn-albumm-5-thattur-franz-gunnarsson-og-loa-hjalmtysdottir/
https://albumm.is/hljomsveitin-ensimi-fagnar-fimmtu-breidskifu-sinni-med-utgafutonleikum/
https://albumm.is/hljomsveitin-ensimi-sendir-fra-ser-lagid-herdubreid-og-heldur-tonleika-a-akureyri/
Umræðan