Skráning er hafin á næsta námskeið hjá Hjólabrettaskóla Reykjavíkur sem hefst laugardaginn 12. Maí og sunnudaginn 13. Maí 2018. Líkt og á fyrri námskeiðum er það Steinar Fjeldsted sem sér um kennsluna en hann hefur um þrjátíu ára reynslu af hjólabrettum, hefur tekið þátt í fjölda keppna bæði hér á landi og erlendis og verið viðloðinn brettanámskeiðum í um fimmtán ár.
Farið er yfir öll helstu grunnatriði hjólabrettaíþróttarinnar eins og t.d. ýta sér, hvernig á að standa, snúa við, líkamsstöður og Ollie (hoppa) svo fátt sé nefnt. Fyrir þau sem eru örlítið lengra komin verður farið í ögn flóknari hluti eins og t.d. Kickflip, Shuvit og jafnvel 360 flip.
Á námskeiðinu er hjálmaskilda en einnig eru allir hvattir til að koma með þær hlífar sem viðkomandi á. Nauðsynlegt er að eiga hjólabretti eða mæta á námskeiðið með eitt slíkt.
Námskeiðið fer fram í húnsæði Jaðars í Dugguvogi 8 í Reykjavík í og byrja þau kl 10:00 og standa til kl 11:30 í fjögur skipti. Námskeiðið kostar 10.000 kr og fer skráning fram á hjolabrettaskoli@gmail.com, nafn og kennitala barns þarf að fylgja skráningu, nafn og símanúmer forráðamanns og hvaða dag á að skrá barnið, (laugardaga eða sunnudaga).
Einnig bjóðum við upp á 20% afslátt á samansettum brettum í versluninni Skuggi á Skólavörðustíg 22.
Hægt er að sjá nánar um starfsemina okkar hér.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Umræðan