Hjólabrettanámskeið fyrir tíu ára og yngri hóf göngu sína Laugardaginn 21. Mars. Þeir Steinar Fjeldsted, Daniil Moroskin og Leon S. Kemp sjá um námskeiðið. Það var mikil gleði í skateparkinu í Hafnarfirði og óhætt er að segja að námskeiðið fór mjög vel af stað. Þetta eru án efa hjólabrettastjörnur framtíðarinnar!
Skráning er hafin á næsta námskeið sem hefst 18. Apríl. Skráning fer fram á brettafelag.is – Mohawks Kringlunni – Skateparkinu Hafnarfirði Flatahrauni 14 eða í síma 612-9150.
Albumm kíkti á svæðið og smellti af nokkrum ljósmyndum.
Umræðan