Helgi Björnsson var að senda frá sér nýja plötu en hún ber heitið, Ég stoppa hnöttinn með puttanum. Platan inniheldur glæný lög sem mestmegnis eru samin af þeim Helga Björnssyni, Guðmundi Óskari Guðmundssyni og Atla Bollasyni. Það er sama teymi og kom að laga – og textasmíðum á síðustu plötu Helga, Veröldin er ný, sem fékk frábærar viðtökur. Eitt laganna á nýju plötunni er samið af þeim Helga og Pétri Benediktssyni.
Heiti plötunnar vísar í samnefnt lag á plötunni. Hugurinn leitar út í heim og er óvissan látin ráða því hvert farið er næst með því að stoppa hnöttinn með puttanum.
Fjöldi tónlistarmanna koma að gerð plötunnar, en þungamiðja hljóðfæraleiks er í höndum þessara: Guðmundur Óskar Guðmundsson (bassi, hljómborð, raddir), Örn Eldjárn (gítarar, raddir), Tómas Jónsson (hljómborð) og Magnús Trygvason Eliassen (trommur)
Upptökur fóru fram fyrr á þessu ári í Hljóðrita, Masterkey Studios og í Studio Sjampó og upptökustjórn var í höndum Helga og Guðmundar Óskars.
Platan er komin í helstu plötubúðir, tónlistarveitur og vefverslun aldamusic.is.
Umræðan