Vetur konungur er svo sannarlega mættur til Akureyrar og allar brekkur og fjöll á Norðurlandi þaktar snjó. Það gleður fáa jafn mikið og skipuleggjendur stærstu vetraríþróttahátíðar landsins, Iceland Winter Games (IWG), sem verður haldin dagana 24. mars – 3. apríl og er undirbúningur fyrir hátíðina vel á veg kominn.
Meðal þeirra sem hafa skráð sig til þátttöku á IWG 2016 eru nokkrir af þekktustu og sigursælustu skíða- og snjóbrettamönnum heims. Má þar t.d. nefna hinn 24 ára gamla Svía Henrik Harlut, en hann var valinn skíðamaður ársins árin 2011 og 2013 (Freeskier Magazine) og besti skíðamaður Evrópu árið 2012 (International Freeski Film Festival). Hann hefur auk þess tvisvar sigrað stærsta skíða- og snjóbrettamóti heims, X-Games í Aspen (2013 og 2014), unnið European Open 2009 og keppt fyrir hönd Svía á Ólympíuleikunum í Sochi svo eitthvað sé nefnt. Aðrir þekktir atvinnumenn á skíðum og snjóbrettum sem hafa skráð sig til þátttöku á IWG 2016 eru t.a.m. hinn finnski Antti Autti, Scotty Lago (USA) Scotty Lago (USA) Scotty Lago á glæstan feril að baki.Brons verðlaunahafi á Ólympíleikunum í Sochi,unnið 4 sinnum til verðlauna á X – Games í Aspen,og hefur verið atvinnumaður á snjóbrettum frá 12 ára aldri. Phil Casabon (CAN) hefur einnig staðfest þáttöku sína.
Aðalviðburðir hátíðarinnar eru AFP heimsmeistaramót í Freeski, alþjóðlega IWG Open snjóbrettamótið og fyrsta Íslandsmeistaramótið á snjóbrettum. Þessir viðburðir eru haldnir í Hlíðarfjalli dagana 31. mars – 2. apríl, en Hlíðarfjall er nú á lista yfir 12 mest framandi skíðasvæði heims.
Heimsmeistarmótið í Freeski fór fyrst fram á IWG í mars 2014 og markaði sú keppni upphafið að Iceland Winter Games. Freeski heimsmeistaramótið er hluti af AFP mótaröðinni (The AFP World Tour) og er flokkað sem gullmót, en það er er næst efsta stig í þeirri mótaröð með heildarverðlaunafé upp á tæpar 3 milljónir króna.
Hér er nýjasta myndbandið frá leikunum:
Umræðan