Tónlistarmanninum Prins Póló er marg til lista lagt en ásamt því að vera einn vinsælasti tónlistarmaður landsins framleiðir hann Bulsur og Snakk ásamt eiginkonu sinni Berglindi Häsler og eru þau nú að opna tónleikastað í hlöðunni sinni á Karlsstöðum í Berufirði sem nefnist Havarí.
Albumm.is og Prinsinn hafa nú leitt saman hesta sína en Prinsinn verður með vikuleg myndbönd á Albumm sem nefnast „Hángsað Og Dánglað Með Prinsinum.“
Prinsinn veitir áhorfendum innskot inn í líf sitt í sveitinni, hvað hann er að bralla hverju sinni en margir geta lært ýmislegt af Prinsinum þar sem hann er mikill lífskúnstner!
Í þessum þætti má sjá Prinsinn fara með magnaðann texta á meðan hann situr á klósettinu, liggjandi á bílhúddi og að sjálfsögðu að útbúa fyrsta flokks gúmmelaði!
Umræðan