Á næstu tónleikum vordagskrár Múlans, miðvikudaginn 10. maí á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu, kemur fram tríó píanóleikarans Sunnu Gunnlaugs. Tríóið hefur verið iðið við tónleikahald víða um heim og fengið frábærar umfjallanir fyrir diska sína Long Pair Bond, Distilled og Cielito Lindo. Einstakt jafnvægi ríkir í tríóinu þar sem segja má að hver meðlimur botni línur hinna og hefur melódísk nálgun tríósins í bland við krefjandi form unnið þeim marga aðdáendur. Efnisskrá tríósins verður bland af nýju efni og tónsmíðum af eldri diskum þeirra. Þorgrímur Jónsson bassaleikari og trommuleikarinn Scott McLemore fullkomna tríóið.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og fara fram á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu og er miðaverð kr. 2000, 1000 kr. fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu, harpa.is og tix.is
Spennandi vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum á Björtuloftum, Hörpu með 16 tónleikum til 17. maí. Flestir af helstu jazzleikurum þjóðarinnar koma fram í dagskránni, m.a. Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson, Eyþór Gunnarsson, Tómas R. Einarsson, Sigurður Flosason, Einar Scheving, Þorgrímur Jónsson, Sunna Gunnlaugs, Erik Qvick, Ásgeir Ásgeirsson, Andrés Þór Gunnlaugsson, Scott McLemore, Ólafur Jónsson, Kjartan Valdemarsson, Haukur Gröndal og Jóel Pálsson og fleiri og fleiri.
Múlinn er að hefja sitt 21. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóðnum og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Umræðan