Go Skateboarding Day var haldinn hátíðlegur um heim allann á sunnudaginn sem leið og er Ísland þar engin undantekning. Það hittust fjölmargir skeitarar við Hallgrímskirkjuna í Reykjavík og renndu þeir sér saman niður á Ingólfstorg, ótrúlega töff!
Það er eitthvað mjög fallegt við það að sjá helling af skeiturum renna sér saman um götur borgarinnar!
Þegar á Ingólfstorg var komið tók við gott, sveitt og skemmtilegt skate session fram eftir degi. Sólin skein, hitinn fór ágætlega yfir tíu gráður og allir voru í stuði, hinn fullkomni dagur!
Albumm.is lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á Go Skateboarding Day í Reykjavík.
Steinar Fjeldsted rúllaði sér með og tók hann þessar ljósmyndir fyrir Albumm.is
Umræðan