GlerAkur fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar The Mountains Are Beautiful Now með tónleikum á Húrra þann 30. nóvember. Ásamt GlerAkri stígur á svið hljómsveitin World Narcosis sem einnig sendi frá sér breiðskífu á árinu.
GlerAkur er tónlistarverkefni Elvars Geirs Sævarssonar sem starfar sem hljóðhönnuður við Þjóðleikhúsið. Fyrsta breiðskífa GlerAkurs kom út hjá útgáfufyrirtækinu Prophecy Productions í júlí á þessu ári, en á síðasta ári kom út þröngskífan Can’t you wait hjá sama fyrirtæki. Elvar setti saman hljómsveit til að flytja tónlistina á sviði og hefur fengið til liðs við sig tvo trommuleikara, einn bassaleikara og fjóra gítarleikara.
Tónleikar GlerAkurs eru mikil upplifun fyrir öll skilningarvit og í tvö ár í röð hefur tímaritið Rolling Stone gefið þeim og hljómsveitinni bestu einkunn á Iceland Airwaves-hátíðinni.
Smekkleysa sér um dreifingu á plötum GlerAkurs á Íslandi og þær fást í öllum helstu plötubúðum landsins á vínlyl, geisladisk eða í sérstakri viðhafnarútgáfu sem sjá má í eftirfarandi myndbandi
Hér má sjá upptöku af GlerAkri að leika í beinni útsendingu hjá KEXP.
Hægt er að hlýða á plötuna í heild sinni hér
Umræðan