Snjóbrettahátíðin Ak Exteme fór fram um helgina sem leið og óhætt er að segja að hún var sú glæsilegasta til þessa! Hámark helgarinnar var á laugardagskvöldinu þegar gámastökkið var við veldi og var stemmingin gríðarlega góð en nokkur þúsund manns fylgdist með herlegheitunum.
Einar Rafn Stefánsson fór með sigurinn í gámastökkinu en hart var barist og ótrúleg tilþrif sýnd. Aðstandendur Ak Extreme meiga vera afar stoltir af hátíðinni í ár en eins og fyrr hefur komið farm var hún hin glæsilegasta!
Ljósmyndarinn Linda Ólafsdóttir var á svæðinu og tók hún þessar frábæru ljósmyndir.
Umræðan