Hljómsveitin Oyama er hægt og rólega að rísa úr dvala eftir annasama haustmánuði árið 2014. Auk þess að fara í tónleikaferð til Japan gaf sveitin út plötuna Coolboy í nóvember sem hlaut frábærar viðtökur og var inni á langflestum topplistum íslenskra miðla, auk þess sem lagið “Siblings” var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Nú blása Oyama til tónleika ásamt hljómsveitinni Tilbury og fara herlegheitin fram 6. febrúar á Húrra. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og kostar 1500 kr inn. Sjá facebookviðburð hér.
Í viðhengi má finna plakat fyrir viðburðinn, hannað af Þormóði Dagssyni.
Af þessu tilefni hafa Oyama ákveðið að gefa áhugasömum lagið “Another Day” af plötunni Coolboy sem frítt niðurhal á bandcampsíðu sinni. Laginu má hlaða niður hér.
kápa lagsins “Another Day”; er hönnuð af bassaleikara Oyama (Bergur Thomas Anderson)
Umræðan