Bíó Paradís hefur undanfarin ár staðið fyrir fræðslu í kvikmyndalæsi fyrir börn, unglinga og framhaldsskóla og er eina stofnunin utan skóla sem veitir slíka þjónustu. Oddný Sen sem sér um fræðsluna útskrifaðist sem Kvikmyndafræðingur og rithöfundur með BA próf í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og einnig í kvikmyndafræðum og kvikmyndasögu frá Parísarháskóla. Fræðslan felst í kynningum á kvikmyndum sem hafa alþjóðlega gæðastimpla, hafa skapað sér sess innan kvikmyndasögunnar og eru frá ýmsum þjóðlöndum. Myndirnar eru valdar í því augnamiði að beina athygli að málum eins og jafnrétti, mannréttindum, einelti, aðbúnaði barna um heim allan, gildi menntunnar og öðrum baráttumálum. Kennarar geta einnig nýtt sér sýningarnar í tengslum við mannkynssögu, tungumálakennslu og náttúrufræði.
Á undan sýningum eru sýndar stiklur um þróun myndmáls frá upphafi kvikmynda til okkar tíma, þróun kvikmyndatökuvélarinnar og sögu kvikmyndanna frá 1895 til okkar tíma. Bíó Paradís hefur nú þjónustað yfir 21.000 börn og unglinga með þessari starfsemi.
Á þessari önn er boðið upp á myndir á borð við Dagbækur heiðursins til að kanna aðbúnað stúlkna í framandi þjóðlöndum, svo er tekið fyrir tímabil í sögu Ástralíu þar sem börn innfæddra voru tekin frá fjölskyldum sínum og látin þræla hjá hvítum í Rabbit Proof Fence svo verður kalda stríðið kannað fyrir tilstilli íshokkís með myndinni Rauði herinn. Kynnst verður heillandi heimi hinnar frönsku Amelie, kannað verður fantasíumyndir eins og Fantastic Mr. Fox eftir Wes Anderson, Lísu í Undralandi eftir Tim Burton, Edward Scissorhands eftir sama leikstjóra og svo hina frægu Festen eftir Thomas Vinterberg svo fátt eitt sé nefnt.
Sýningar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 10:00 og 13:00, en sýningar fyrir framhaldsskóla eru á mánudögum klukkan 14:15. Þar geta framhaldsskólanemar kynnt sér klassískar perlur kvikmyndasögunnar og fá allt fræðsluefni þar að lútandi. Sýningar grunnskóla hefjast 15. september og sýningar framhaldsskóla þann 7. september.
Hér er hægt að nálgast dagskrá grunnskóla fyrir haustönn 2015
Hér er hægt að nálgast dagskrá framhaldsskóla fyrir haustönn 2015
Umræðan