Hin glænýja hljómsveit Flekar kynnir sig til sögunnar með laginu „Without a Rider.” Hljómsveitin er skipuð af Vigni Andra Guðmundssyni, Sigurbirni Má Valdimarssyni og Skúla Arasyni.
Segja má að Flekar hafi fæðst á baki skellinöðru á rykugum vegum afskekktra sveitahéraða Austur-Afríku. Á meðan kjúklingar og kalkúnar gogguðu á bögglaberum reiðskjótans mótuðust hugmyndir sem seinna áttu eftir að verða að fyrstu lagagrunnum Fleka. Þegar heim var snúið úr eyðimörkinni stóð Vignir, söngvari og gítarleikari sveitarinnar, á tímamótum þar sem hann hafði sagt upp vinnu og húsnæði, hætt í hljómsveit og sambandi, peningar höfðu þurrkast upp og þörf á núllstillingu. Allt þurfti að endurhugsa og uppgjör óhjákvæmileg. Tónlistin var lausn og þurfti aðkomu vina og líkt þenkjandi manna. Sigurbjörn kemur fyrst til sögunnar og mótar, betrumbætir og skapar hljóðheim Fleka. Flekarnir þróast svo áfram þar til aðkoma Skúla varð óhjákvæmileg og kjarni Fleka fannst.
Á sama tíma og legið hefur verið yfir smáatriðum og útsetningum, á orðið naumhyggja samt sem áður við um vinnslu tónlistarinnar, svo úr verður bútasaumsteppi óhefðbundinnar popptónlistar sem kemur við á slóðum þjóðlagatónlistar og sýrupopp.
Þannig mynda meðlimirnir órjúfanlegt tónlistarbræðralag sem mótast hefur frá aldamótum og kjarnast í Flekum sem stíga nú fram á sjónarsviðið.
Nafnið Flekar kallar fram hugmyndir um núning, óbeislaða orku, óreiðu og hamfarir. Á sama tíma koma upp hugmyndir um bjargræði og liðna tíð þar sem börn léku sér óáreitt á heimagerðum flekum; samsettum úr maurasýrubrúsum, baggaböndum og vörubrettum. Nafnið fangar þannig hljóðheim hljómsveitarinnar.
Umræðan