Exos, Yamaho og Bervit blása til heljarinnar tónlistarveislu á skemmtistaðnum Paloma 19. September næstkomandi. Það má segja að þetta sé heljarinnar Comeback hjá Exos og Yamaho en þau hafa haldið mánaðarleg kvöld á Paloma í heilt ár og hafa kvöldin svo sannarlega slegið í gegn. Samstarfið fór í sumarfrí en eru þau nú sameinuð á ný og geta þau varla beðið eftir laugardeginum.
Fyrir þá sem vita það ekki er Exos einn fremsti Techno tónlistarmaður landsins og þó víðar væri leitað. Exos var nýlega á túr með Techno dívunni Ninu Kraviz.
Yamaho er einn fremsti plötusnúður landsins en hún hefur trillt landann í áraraðir.
Hinn eini sanni Bervit mun byrja kvöldið.
Frítt er inn til kl 01:00 eftir það kostar litlar 1.000 ár inn.
Alls ekki láta þetta framhjá þér fara!
Tengdar færslur:
STUTTSKÍFAN „Q-BOX“ MEÐ LISTAMANNINUM EXOS ER FÁANLEG Á NÝJAN LEIK OG MUN HÚN KOMA ÚT Á VEGUM THULE ÚTGÁFUNNAR
NINA KRAVIZ Á PALOMA (LJÓSMYNDIR)
https://albumm.is/nina-kraviz-a-paloma-ljosmyndir/
TECHNO DÍVAN NINA KRAVIZ KVEIKIR Í KLAKANUM ÞANN 15. MAÍ Á PALOMA
https://albumm.is/techno-divan-nina-kraviz-kveikir-i-klakanum-thann-15-mai-a-paloma/
Umræðan