Tónlistarhátíðin ATP á Íslandi tilkynnir nú í þriðja sinn nöfn listamanna sem spila á tónlistarhátíðinni á Ásbrú dagana 1. til 3. júlí 2016.
Metnaðarfull dagskrá ATP heldur áfram að vaxa og dafna. Hið áhrifamikla tríó frá Ástralíu, Dirty Three, hefur boðað komu sína, tilraunasveitin This Is Not This Heat lætur til sín taka, alþjóðlega stórstjarnan Omar Souleyman mætir til leiks og sveitin Suuns kemur frá Montreal. Einnig koma fram íslensku sveitirnar Valdimar, Kimono og Muck ásamt fleiri framúrskarandi listamönnum og hljómsveitum.
Ítalska tónskáldið Claudio Simonetti (Goblin) á mjög farsælan feril að baki við að semja tónlist fyrir hryllingsmyndir Dario Argento. Hann er afar dáður fyrir meðal aðdáenda hryllingsmynda enda myndir á borð við Profondo Rosso, Suspiria og Tenebrae kvikmyndaaðdáendum að góðu kunnar. Claudio Simonetti kemur á ATP á Íslandi sem Goblin en á efnisskránni verða vinsælustu verk Goblin en sveitin á sér langa sögu í ítalskri framúrstefnu- og kvikmyndatónlist.
Annar óumdeildur meistari ítalskrar hryllingsmyndatónlistar sem mætir á ATP á Íslandi er Fabio Frizzi. Hann kemur til með að flytja nýjar tónsmíðar en auk þess mun hann heiðra hið sérstaka samstarf sitt við leikstjórann Lucio Fulci (sem þekktur er sem guðfaðir gorsins). Tónleikar með Fabio Frizzi þykja með eindæmum áhugaverðir en þar koma saman meðlimir úr Frizzi 2 Fulci sveitinni ásamt söngvurum. Frizzi fremur svartan og hrollvekjandi tónlistargaldur sinn á magnaðan máta þar sem tónsmíðarnar koma úr kvikmyndum á borð við Zombie Flesh Eaters og öðrum blóði drifnum epískum meistaraverkum á borð við Seven Notes In Black, City Of The Living Dead,Manhattan Baby en auk þess að kafa djúpt ofan í fen hryllings og spennu verður einnig nýtt proggað-rokk meistarans á boðstólnum. Arfleið Frizzi er löngu tryggð og hann er lofaður meðal aðdáenda ítalskra hryllingskvikmynda en vinsældir hans hafa aukist til muna síðustu ár eftir að Quentin Tarantino notaði tónlist hans úr The Psychic (a.k.a. Seven Notes In Black) í kvikmyndinni Kill Bill, Vol. 1.
ATP á Íslandi þykir einnig afar gaman að tilkynna að Fabio Frizzi kemur til með að flytja tónlist sína við meistaraverkið The Beyond sem á einmitt 35 ára afmæli um þessar mundir.
Ástralarnir í Dirty Three verða kærkomnir gestir enda kærir vinir ATP tónlistarhátíðarinnar í gegnum árin. Á efnisskránni verða helstu smellirnir ásamt þeim lögum sem með réttu ættu líka að vera smellir en Warren Ellis úr Dirty Three lofar stuði og segir:
„Á góðum degi finnist ekki það band sem jafnist á við Dirty Three á tónleikum.” – Warren Ellis
Stofnmeðlimir hinnar goðsagnakenndu This Heat, þeir Charles Bullen og Charles Hayward koma saman á ný undir nafninu This Is Not This Heat til að flytja ný og litrík tilbrigði við þá kyngimögnuðu og áhrifamiklu músík sem þeir sendu frá sér á sínum sokkabandsárum. Sýrlendingurinn undursamlegi, Omar Souleyman kemur til með að heiðra gesti ATP með frábærri sviðframkomu sinni og alþjóðlegum brag og Suuns verður með nýju plötuna sína Hold/Still í farteskinu þegar hún mætir til landsins.
Auk þessara erlendu sveita og listamanna verður einnig margt af því besta sem íslenskt tónlistarlíf hefur upp á að bjóða á ATP: Það er með miklu stolti sem hátíðin kynnir til leiks sveitir á borð við Valdimar, Kimono, og Muck. Younghusband mæta svo aftur til leiks á ATP í sumar, annað árið í röð en auk þeirra mæta á hátíðina Andrew Hung úr Fuck Button’s, USA Out Of Vietnam, Mario Batkovic, JC Flowers, Grimm Grimm og ADSL Camels sem kynna nýja tóna.
Listi yfir þá listamenn og hljómsveitir sem hafa nú staðfest komu sína:
John Carpenter, Goblin, Fabio Frizzi, Sleep, Dirty Three, Thee Oh Sees, Tortoise, Ty Segall & The Muggers, Les Savy Fav, This Is Not This Heat, Omar Souleyman, Suuns, Angel Olsen, Yasmin Hamdan, Blanck Mass, Andrew Hung, Anika, Valdimar, Growing, Kimono, Muck, Younghusband, USA Out Of Vietnam, JC Flowers, Grimm Grimm, ADSL Camels, Mario Batkovic, Örvar Smárason & Gunnar Tynes (múm) performing Menschen Am Sonntag, Grín úr smiðju Stewart Lee.
ATP á Íslandi er líkt og áður haldið á Ásbrú í Keflavík. Boðið er upp á tónlist á tveimur sviðum innandyra auk þess sem sýndar verða sérvaldar kvikmyndir, keppt í PopQuiz, dansað við dj-tóna í diskósal og margt fleira. Meðal listamanna sem komið hafa fram á ATP á Íslandi síðustu þrjú ár má nefna Nick Cave and the Bad Seeds, Portishead, Iggy Pop, Neil Young & Crazy Horse og Public Enemy.
http://www.atpfestival.com/events/atpiceland2016/view/eventinfo
Umræðan