EinarIndra er raftónlistarmaður en hann hefur verið iðinn við sköpun sína í um fimmtán ár. EinarIndra sendi á síðasta ári frá sér plötuna “You Sound Asleep“ á vegum Möller Records og hefur hún fengið frábæra dóma víðsvegar um heiminn.
EinarIndra var að senda frá sér nýtt lag og myndband sem nefnist “Thoughts“. Myndbandið er tekið upp á Tjörnesi rétt við Húsavík og geta glöggvir séð Skjálfanda og Lundey í bakgrunni.
Kappinn er þessa dagana að vinna að nýju efni og mun hann koma fram á raftónlistarveislunni Extreme Chill á Hellisandi í Ágúst.
Umræðan