Fyrsta plata hljómsveitarinnar kriki er væntanleg í byrjun næsta árs, en hljómsveitin hefur verið talsvert áberandi undanfarin tvö ár. Platan ber heitið Svefn sem á vel við rólega og lágstemmda tónlist sveitarinnar. Tónlistin er draumkennd, dáleiðandi og litlar sem engar trommur eru notaðar en hljóðheimurinn er afar fljótandi.
Ástin og misánægjulegu hliðar hennar er sterk þema í textum Katrínar Helgu, söngvara og gítarleikara hljómsveitarinnar. Hlustendur fá að gægjast inn í innstu kima sálar hennar. Ásamt henni í hljómsveitinni eru Sindri Bergsson sem spilar á hljóðgervla, gítar og önnur tilfallandi hljóðfæri og Hjalti Jón Sverrisson sem spilar á bassa. Saman mynda þau heildstæðan hljóðheim með einlægni og einfaldleika að leiðarljósi.
Svefn er tilvalin plata fyrir þá sem vilja slaka á í skammdeginu og hverfa inn í þann töfrandi heim sem kriki hefur skapað.
Þeir sem vilja tryggja sér eintak geta gert það hér
Umræðan