Dj Íslands heldur áfram í kvöld á Paloma, en hart er barist um Fernet Branca bikarinn, en þetta er seinni bardagi undanúrslitanna. Um síðustu helgi hlaut sjálfur formaðurinn í lægri hlut fyrir Dj Yamaho og er hún því komin í undanúrslit.
Í kvöld eru það Bensol og Gunni Ewok sem berjast um bikarinn, en sá sem kemst áfram er kominn í undanúrslit ásamt Dj Yamaho.
Spennan magnast og óhætt er að segja að stemmingin verði rafmögnuð þetta sunnudagskvöld á Paloma enda ekki annað hægt þegar Sunnudagsklúbburinn á í hlut.
Umræðan