Síðastliðin laugardag hélt hljómsveitin Dimma tvenna tónleika á hinum frábæra stað Húrra. Fyrri tónleikarnir byrjuðu kl 16:00 og voru fyrir yngri kynslóðina en seinni tónleikarnir byrjuðu kl 22.00 og voru þá ætlaðir fyrir ögn eldri aðdáendur.
Dimmu þarf ekki að kynna fyrir landsmönnum en þeir eru ein helsta þungarokkshljómsveit íslands enda vel valinn maður í hverju horni.
Báðir tónleikarnir heppnuðust þrusu vel og það sannaði sig að vel er hægt að halda flotta rokk tónleika að degi til.
Um kvöldið ætlaði allt um koll að keyra á Húrra og þyrstir rokk hundar gengu sveittir og sáttir út!
The Show Shutter kíkti á tónleikana um kvöldið og tók þessar frábæru ljósmyndir fyrir Albumm.is
https://instagram.com/THESHOWSHUTTER
Umræðan