Hátt í 70 hljómsveitir og listamenn koma fram á hátíðinni í Hörpu. Metfjöldi erlendra gesta –
Sónar Reykjavík fer fram 12.-14. febrúar.
Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík var tilkynnt nú í hádeginu. Alls munu 68 hljómsveitir og listamenn koma fram á hátíðinni í ár, sem fram fer á fimm sviðum í Hörpu dagana 12.-14. febrúar. Búist er við rúmlega 1.500 erlendum tónleikagestum á hátíðina, en fjöldi þeirra hefur stigvaxið frá því hún var fyrst haldin í febrúar árið 2013.
Dagskrá Sónar Reykjavík 2015 má nú nálgast í heild sinni heimasíðu Sónar Reykjavík, www.sonarreykjavik.com, og Sónar Festival appinu sem ná má í frítt á Google Play og App Store Apple.
Sónar Reykjavík 2015 fer fram dagana 12, 13 og 14. febrúar á fimm sviðum í Hörpu. Bílakjallara hússins verður breytt í næturklúbb líkt og í fyrra þar sem innlendir og erlendir plöstunúðar sjá þar um dagskrána. Alls munu yfir 60 hljómsveitir og listamenn koma fram á hátíðinni.
Miðaverð er 18.900 og gildir miðin á alla tónleika Sónar Reykjavík 2015. Ekki eru seldir miðar á einstaka kvöld eða tónleika.
DAGSKRÁ
Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á heimasíðu hennar www.sonarreykjavik.com og Sónar Festival appinu sem ná má í frítt á Google Play og App Store Apple.
Má finna á heimasíðu hátíðarinnar hér.
Umræðan