Þeir Daníel Hjálmtýsson og Benjamín Náttmörður Árnason renna sér nú niður hlíðar Reykjavíkur með jólalög af gamla skólanum í farteskinu, en drengirnir vöktu mikla lukku á Dillon síðastliðinn laugardag og í Mótorsmiðjunni sama dag þar sem þeir frumsýndu verkefni sitt, sem þeir kjósa að kalla, Croon & Swoon. Sleðaferðin er þó einungis rétt hafin og munu þeir Daníel og Benjamín bjóða upp á fría tónleika í plötuversluninni stórfenglegu, Lucky Records við Rauðarárstíg, í dag föstudag kl. 17.00. Sveinki gamli verður með í för og ef marka má frammistöðu drengjanna um liðna helgi, er von á hlátri ofan í maga í bland við jólastemmingu og jólayl. Lýkur ferðalagi þeirra félaga ekki fyrr en á Þorláksmessukvöldi og verða komandi tónleikar auglýstir þegar nær dregur. Aðgangur er ókeypis.
15 EXCEPTIONAL ARTISTS NOMINATED FOR THE MUSIC MOVES EUROPE AWARDS 2024
Bilbao, October 26, 2024 - The highly anticipated Music Moves Europe Awards 2024 is thrilled to unveil the fifteen...
Umræðan