Múrarar er nýtt tónlistarsamstarf Gunnars Arnar Egilssonar, Kristins Roach Gunnarssonar og Gunnars Gunnsteinssonar en Múrarar eru að gefa út sýna fyrstu plötu sem nefnist Ökulög og er umfjöllunarefnið götur, firðir og ástand. Platan, sem inniheldur fjögur lög, byrjar fyrir norðan og keyrt er suður, frá Öxnadal til Reykjavíkur.
Múrarar steypa lágstemmda og seigfljótandi tregatekknó með surfgítarplokki, saxófónískum eilífðarmelódíum og júrósentrískum kirkjuhljómum.
Hægt er að hlýða á plötuna hér að neðan.
[bandcamp width=350 height=470 album=3065009342 size=large bgcol=ffffff linkcol=0687f5 tracklist=false]
Umræðan