Breiðholt Festival verður haldið með pompi og prakt sunnudaginn 14. ágúst í Skúlptúrgarðinum við Ystasel og Ölduselslaug í grónum dal í Seljahverfi.
Dagskrárliðir eru af fjölbreyttum toga en þar má nefna:
Stofutónleikar með Pascal Pinon þar sem leikið er á píanó sem er eitt af fjórum sinnar tegundar, handsmíðað á Íslandi.
Smáholt – vinnusmiðja; Komið og takið þátt í að byggja lítið Breiðholt – úr pappa! Pappakassar taka á sig nýja mynd og umbreytast í Seljakirkju, Mjóddina, Breiðholtslaug og fleiri byggingar. Tilvalið sunnudagskósý fyrir fjölskyldur og vini!
Kórus (kórtónleikar) syngur í Skúlptúrgarðinum á meðal kórfélaga eru Pétur Ben, Kira Kira, Valgeir Sigurðsson, María Huld Markan, Elín Hansdóttir, Kristín Anna og Gyða Valtýsdætur o.fl.
Sundlaugar-zumba, tónleikar og hljóðinnsetning eftir Paul Corley ofan í Ölduselslaug. Einstakt tækifæri til að láta sig fljóta um með Float flothettur í lítilli laug sem er yfirleitt ekki opin almenningi og hlusta á tónlist undir vatnsyfirborðinu.
Stofutónleikar í Gróðurhúsinu hljóðveri með Daníel Bjarnasyni á undirbúið píanó með rafívafi
Teikningar og sjálfsævisöguleg skrif eftir tónlistar- og myndlistarkonuna Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur (FM Belfast) sem tengjast Breiðholti.
Hermigervill spilar steinsnar frá húsinu sem hann ólst upp í.
Markaður með mat frá ýmsum heimshornum, nýuppteknu grænmeti og vínylplötum
Á Facebook síðu hátíðarinnar er einn listamaður kynntur til leiks á hverjum degi fram að hátíðinni í stuttu spjalli um tengingu sína við Breiðholt og uppáhalds staði í hverfinu.
Umræðan