Næstkomandi laugardag, 13. júní, fer hátíðin Breiðholt Festival fram í fyrsta sinn. Eins og nafnið gefur til kynna verður hátíðin í Breiðholti og er það von aðstandenda að sem flestir geri sér ferð í hverfið til að njóta fjölda ókeypis viðburða, en hátíðin er gjaldfrjáls og öllum opin.
Nú hefur fleiri listamönnum verið bætt við dagskrá hátíðarinnar, en hér að neðan má sjá heildarlista listamanna;
Ben Frost – 6 Guitars
Nico Muhly
Samaris
Cell7
Kira Kira
Sjón
Stelpur Rokka!
DFM Company
Lúðrasveit Breiðholts og Árbæjar
Gunnar Jónsson Collider
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
Davíð Örn Halldórsson
Parabolur
KGB
Wesen
DOD
Hrefna Björg Gylfadóttir – ljósmyndasýning
Kristín Dóra Ólafsdóttir – Örsögur
Die Jodlerinnen
Nico Muhly
Samaris
Cell7
Kira Kira
Sjón
Stelpur Rokka!
DFM Company
Lúðrasveit Breiðholts og Árbæjar
Gunnar Jónsson Collider
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
Davíð Örn Halldórsson
Parabolur
KGB
Wesen
DOD
Hrefna Björg Gylfadóttir – ljósmyndasýning
Kristín Dóra Ólafsdóttir – Örsögur
Die Jodlerinnen
Ljóst er að flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni, bæði músíkalskir næturhrafnar sem og fjölskyldufólk í ævintýraleit.
Viðburðir hátíðarinnar fara fram milli 12 og 22 á nokkrum vel völdum stöðum í Seljahverfi og í kring.
Sem dæmi um viðburði má nefna píanóverk Bedroom Community-tónlistarmannsins Nico Muhly í Gróðurhúsinu hljóðveri, þar sem hann hefur tekið upp og samið fjölmörg verk um árabil.
Ölduselslaug býður upp á örsögur og ljósmyndasýningu allan daginn og tónlistarfólk úr Breiðholti treður upp, til að mynda KGB og Gunnar Jónsson Collider.
Í skúlptúrgarðinum leika lúðrasveitir og gestir fá einnig tækifæri til að leika sér, með listakonunni Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur.
Í vinnusmiðju við skúlptúrgarðinn bjóða Parabólur upp á tónlist og Sjón les ljóð.
Hólmasel er heimili listasmiðja; Stelpur Rokka og Dansaðu fyrir mig bjóða þar upp á fjölbreytta dagskrá auk þess sem danskt-íslenskt samstarfsverkefni sér um að reisa öndvegissúlu Breiðholts með íbúum og gestum til að deila sögum hverfisins.
Á tónleikasvæðinu troða upp Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts, Ben Frost og vel valdir gestir flytja ‘6 Guitars‘, auk Kiru Kiru, Wesens, Cell7 og Samaris sem loka hátíðinni.
Fleira verður um að vera, líkt og markaðir á vegum Breiðhyltinga.
Eins og áður segir miðar Breiðholt Festival að eflingu samfélags og listsköpunar í Breiðholti. Þorri listamanna sem koma fram á hátíðinni eru Breiðhyltingar sem snúa hér með aftur í gamla hverfið sitt þennan dag til að leggja sitt af mörkum. Er það von aðstandenda að laugardagurinn 13. júní verði aðeins byrjunin á Breiðholt Festival og að hátíðin muni vaxa og dafna með árunum!
___
Breiðholt Festival er styrkt af eftirfarandi aðilum og er þeim hjartanlega þakkaður stuðningurinn:
Evrópa Unga Fólksins, Erasmus+
Borgarsjóður Reykjavíkurborgar
Hverfisráð og hverfismiðstöð Breiðholts
Umræðan