Tónlistarmaðurinn Bertel Ólafsson gaf nýverið út nýtt lag sem var sérstaklega samið fyrir EM fótboltakeppnina. Lagið heitir „Kaldir Víkingar” og er það eftir Bertel sjálfann, en í laginu nýtur hann aðstoðar Viðju Antonsdóttur en hún syngur í laginu. Einnig var hóað í nokkra fótboltaáhugamenn og vini til að taka undir í bakröddum.
Gunnar Sigurðsson plokkar kassagítarinn. Lagið var tekið upp í Stúdíó Sýrland. Ívar Júlíusson tók upp og hljóðblandaði.
„Kaldir Víkingar” er óformlegur óður til landsliðs Íslands fyrir Evrópumótið og mælt er með að fólk syngi með við hlustun!
Umræðan