Líkt og undanfarin ár er Bedroom Community útgáfan í hátíðarskapi og hefur af því tilefni gefið út jólamixið Yule, frítt til niðurhals með hverri keyptri plötu á heimasíðu útgáfunnar.
Mixið, “Gold Christmas“, er rúmar 40 mínútur að lengd og inniheldur áður óútgefið efni Bedroom Community listamanna & vina.
Lagalistann má sjá að neðan og frekari upplýsingar má nálgast hér.
1. James McVinnie – Lo, He Comes with Clouds Descending : English Traditional Hymn
2. Valgeir Sigurðsson – MMXIV
3. Nadia Sirota & Alexander Overington – Golden Hours
4. Sasha Siem – My Friend (Susanne Sundfør Remix)
5. Puzzle Muteson – En Garde (Magpie D&B remix)
6. Ben Frost – Deposit (taken from Yann Mingard Art Installation)
BEDROOM COMMUNITY ÚTGÁFUR ÁRINS 2014 :
Ben Frost: A U R O R A (26. maí)
Fimmta sólóplata Bens var að miklu leiti samin í Kongó og hefur hlotið mikið lof á árinu. A U R O R A hefur prýtt hina ýmsu topplista og hlaut nýlega fimm stjörnur í Morgunblaðinu, en auk þess var hún tilnefnd til Kraumsverðlauna.
“…his greatest solo album yet” -Clash
“Frost’s most fully realised work to date” -The Wire
“…the darkest and most powerful recording of his career” -Resident Advisor
Puzzle Muteson: Theatrics(29. september)
Önnur plata listamannsins dularfulla Puzzle Muteson tvinnar saman melódíum og mekanisma; platan er óður til þjóðlagatónlistar á sama tíma og hún kannar leyndardóma hins rafræna hljóðheims.
Fjölmargir listamenn leggja Puzzle Muteson lið á Theatrics, svo sem hollenski tónlistarmaðurinn Machinefabriek auk Bedroom Community listamannanna Nico Muhly og Valgeirs Sigurðssonar.
“Immaculate.” 8/10 -Drowned in Sound
Ben Frost: V A R I A N T (8. desember)
Stuttskífan V A R I A N T inniheldur endurhljóðblandanir eftir Regis, Evian Christ, HTRK, Dutch E Germ og Kangding Ray.
“This is energetic and essential listening.” -Exclaim
“If a remix EP is only as good as its remixers, then Ben Frost’s V A R I A N T has a hell of a lot going for it. [The remixers] transform selections from the Reykjavík-based experimentalist’s stunning A U R O R A LP, using its thunderous percussion and icy textures in five distinctive ways.”-Resident Advisor
Umræðan