Tónlistarkonan Heiða Dóra Jónsdóttir eða Bara Heiða eins hún kallar sig er mörgum góðkunnug en hún var að senda frá sér glænýtt lag og myndband sem nefnist „Stormtrooper.“
Lagið fjallar um konu sem verður ástfangin af Stormtrooper sem strandaði á plánetunni hennar en þarf síðan að fara í orrustu. Stormtrooperinn veit ekki að konan er ófrísk en hún verður ein eftir með barnið.
Myndbandið er einkar skemmtilegt og oft á tíðum nokkuð spaugilegt, en þar má sjá Stormtrooper sem strandar á Íslandi og reynir að aðlagast lífinu hér. Fyrst gengur það brösuglega en síðan kynnist hann indælli nördastúlku og þá fara hlutirnir að horfa upp á við.
Lag og texti er eftir Bara Heiðu en hún spilar einnig á Úkelele í laginu, Fiðla – Martin Frewer, Trommur – Jón Geir Jóhannsson, Gítar, synthar, slagverk, bakraddir og bassi – Arnar Guðjónsson. Útsetning og mix – Arnar Guðjónsson /Aeronaut Studios, Mastering – Finnur Hákonarson
Myndbandið er unnið af Spunk Team Productions.
Umræðan