Átrúnaðargoðin er nýtt rappband sem hefur vakið talsvert umtal þrátt fyrir að hafa látið lítið fyrir sér fara hingað til. Meðlimir eru þeir Guðjón Heiðar og Bragi Björn en hvorugur þeirra hafa verið áberandi í rappsenunni á Íslandi til þessa. Guðjón kom fram í lagi Futuregrapher, Think en hafði þar á undan verið í rokksveitinni Palindrome og satíru strákabandinu 3G´s sem átti nokkur vinsæl lög um aldamótin. Bragi hefur sungið með blúsrokkbandi og undanfarið einbeitt sér að ljóðalestri með ljóðskáldunum í Fríyrkjunni.
Upptökustjóri hljómsveitarinnar er enginn annar en gangandi goðsögnin Gnúsi Yones, einn af stofnmeðlimum Amaba Dama og Subterranean. Hann hefur áður stjórnað upptökum fyrir Ojba Rasta, Reykjavíkurdætur, Cell7 og Amaba Dama sem öll hafa notið mikilla vinsælda. Gnúsi Yones segir þetta um Átrúnaðargoðin:
“Trúleysingjar muna finna guð og trúaðir munu fremja sind þegar þeir átta sig á guðdómlegu orkunni frá þessum tvemur vitleysingum!“ – Gnúsi Yones
Nú er fyrsta tónlistarmyndband drengjanna tilbúið en það er við lagið „Lífið er Strigi.“ Myndbandið var tekið upp, samið og leikstýrt af Braga Birni Átrúnaðargoði. Strákarnir koma svo fram á tveimur tónleikum í júní ásamt Blaz Roca; á Spot í Kópavogi og Gauk á Stöng svo það verðu spennandi að fylgjast með þeim í sumar.
Upptaka & hljóðblöndun: Gnúsi Yones
Grunnur: Mikael Páll Pálsson
Texti: Átrúnaðargoðin
Umræðan